Fótbolti

Steinþór hetja Sandnes Ulf

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/E. Stefán
Steinþór Freyr Þorsteinsson tryggði sínum mönnum í Sandnes Ulf dramatískan sigur á Álasundi á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Steinþór skoraði sigurmarkið í uppbótartíma leiksins. Sandnes Ulf hafði komist tvívegis yfir í leiknum en Álasund jafnað í bæði skiptin.

Steinþór Freyr stal boltanum af varnarmanni Álasunds, komst einn gegn markverði og skoraði örugglega.

Steven Lennon spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í dag en hann kom inn á sem varamaður ellefu mínútum fyrir leikslok.

Sandnes Ulf er í tólfta sæti deildarinnar með nítján stig en Álasund í þriðja sætinu með 28 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×