Fótbolti

Enginn Kolbeinn gegn Norðmönnum | Gunnar Heiðar valinn í hópinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Kolbeinn Sigþórsson verður ekki með íslenska landsliðinu sem mætir Norðmönnum í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu á föstudagskvöldið.

Kolbeinn hefur glímt við meiðsli og Frank de Boer, knattspyrnustjóri félagsins, lét hafa eftir sér um helgina að Kolbeinn hefði dregið sig úr landsliðshópnum.

Tíðindin hafa ekki verið staðfest á heimasíðu KSÍ en heimildir Vísis herma að Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji Norrköping, hafi verið kallaður upp í landsliðshópinn.

Töluverð framherjavandræði eru hjá íslenska landsliðinu því Björn Bergmann Gunnlaugsson var heldur ekki í leikmannahópi Úlfanna gegn Cardiff í dag vegna meiðsla. Leikurinn á föstudagskvöldið verður fyrsti keppnisleikur landsliðsins undir stjórn Lars Lagerbäck.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×