Viðskipti erlent

Forstjóraskipti hjá móðurfélagi Norðuráls

Forstjóraskipti hafa orðið hjá Century Aluminium móðurfélagi Norðuráls. Stjórn félagsins rak Logan Kruger og réð í hans stað Michael Bless.

Bless er innanbúðarmaður í félaginu því hann hefur starfað þar síðan 2006 sem varaforseti stjórnarinnar og fjármálastjóri félagsins. Í tilkynningu um forstjóraskiptin segir Bless að það sé heiður fyrir sig að taka við þessu starfi.

Logan Kruger er hinsvegar ekki ánægður með að vera rekinn. Hann ætlar að höfða mál gegn Century Aluminium fyrir brot á ráðningarsamningi sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×