Viðskipti erlent

Hefja miðasölu á morgun

JMI og JHH skrifar
Flugferðir til Íslands voru kynntar í morgun.
Flugferðir til Íslands voru kynntar í morgun. mynd/ Egill.
easyJet ætlar að hefja sölu á ferðum til Lundúna strax á morgun en fyrr í dag var sagt frá því í tilkynningu að flugfélagið myndi hefja sölu í dag..

Á blaðamannafundi, þar sem flugfélagið tilkynnti áform sín um flugferðir á milli Íslands og Englands, kom fram að lægstu fargjöld Easyjet verða þrjátíu og þrjú pund með sköttum. Það jafngildir um 6100 krónum.

Þar með er komin veruleg samkeppni í flugsamgöngum. Nú þegar fljúga Icelandair og Iceland Express til Lundúna. Þá hefur Skúli Mogensen boðað stofnun nýs flugfélags, en ekkert liggur fyrir um hvort það flugfélag mun fljúga til Englands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×