Innlent

Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar sagt upp

Guðjón Helgason skrifar

Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar, þar á meðal forstjóra, verður sagt upp. Þetta er liður í endurskipulagningu en spara á í rekstri loftvarnarkerfisins. Samningi Ratsjárstofnunar við Símann um rekstur og viðhald ljósleiðarakerfis verður einnig sagt upp. Síminn hefur fengið 120 milljónir á ári til að vinna verkið.

Íslendingar taka við rekstri ratsjárstöðvanna íslensku af Bandaríkjamönnum á morgun. Hermálanefnd Atlantshafsbandalagsins mat það svo að það yrði að tryggja áfram rekstur loftvarnarkerfisins íslenska og samræma það því evrópska til varna á svæðinu.

Rekstrarkostnaður Bandaríkjamanna vegna stöðvanna hafði verið nokkur en hafði lækkað niður í 1200 milljónir króna á ári. Gert er ráð fyrir að reksturinn kosti Íslendinga 800 milljónir á næsta ári og því þarf að spara.

Því hefur verið ákveðið að endurskipuleggja Ratsjárstofnun sem hefur séð um viðhald og einnig eftirlit í gegnum kerfið frá því varnarlið Bandaríkjamanna fór í fyrra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, segir það hafa reynst nauðsynlegt að segja upp öllum samningum Ratsjárstofnunar, þar á meðal við alla starfsmenn hennar sem eru 47. Rétt sé þó að hafa í huga að einhverjir verði endurráðnir enda eigi að halda starfsemi ratsjárstöðvanna áfram.

Utanríkisráðherra segir mögulegt að afla tekna í gegnum Ratsjárstofnun. Íslenska ríkið eigi þrjá ljósleiðara sem Ratsjárstofnun hafi notað fram að þessu. Gerður hafi verið samningur við Símann um reksturinn og fyrir þá þjónustu greiddar 10 milljónir á mánuði. Það séu töluverð útgjöld fyrir Ratsjárstofnun. Hér sé um að ræða strengi sem liggi um allt land og gæti orðið til hagsbóta fyrir almenning á Íslandi, sér í lagi á landsbyggðinni, þar sem hann auki flutningsgetu um 60%.

Utanríkisráðherra segir mörg fyrirtæki hafa áhuga á ljósleiðurunum. Varnarmálaskrifstofa sé nú í viðræðum við Símann um þá. Hún segir vel koma til greina að bjóða afnot og rekstur á þeim út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×