Innlent

Fangageymslur fullar

Fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru fullar í nótt. Að lokinni vel heppnaðri gleðigöngu og dagskrá homma og lesbía tók við kafli númer tvö, eins og lögreglan orðaði það. Mönnum var stungið inn af ýmsum ástæðum. Það voru pústrar og hrindingar og einn maður var sleginn í andlitið með flösku á skemmtistað. Og svo voru sumir bara svo fullir að það var ekki annað við þá að gera en leggja þá til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×