Innlent

Sluppu með skrekkinn þegar skotið var á bíl í Reykjanesbæ

Talið er að skotið hafi verið úr loftbyssu eða loftriffli á bíl sem stóð við Heiðarholt í Reykjanesbæ um kvöldmatarleytið í gær. Stúlka var að taka barn úr barnabílstól þegar ein rúðan í bílnum mölvaðist, að því er fram kemur á fréttavef Víkurfrétta.

Lögreglan á Suðurnesjum fann lítið gat efst á rúðunni og áætlar að það sé eftir byssuskot. Lögregla lítur málið mjög alvarlegum augum enda hefði hæglega getað orðið stórslys. Hún lýsir eftir vitnum að atvikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×