Innlent

ísland yfirtekur starfsemi Ratsjárstofnunar

Ísland mun yfirtaka starfsemi Ratsjárstofnunar frá og með 15. ágúst næstkomandi. Starfshópur skipaður sérfræðingum utanríkisráðuneytisins vinnur nú að undirbúningi yfirtöku íslenskra stjórnvalda á starfsemi stofnunarinnar og aðlögun að íslenskri stjórnsýslu.

"Undanfarna mánuði hafa staðið yfir viðræður Íslands og Bandaríkjanna um framtíð ratsjár- og loftvarnakerfisins á Íslandi. Hingað til hafa Bandaríkin staðið straum af öllum rekstrarkostnaði Ratsjárstofnunar. Í apríl sl. samþykkti þáverandi ríkisstjórn að heimilaðar yrðu fjárveitingar að upphæð 241 milljón kr. í fjáraukalögum 2007 og 824 milljónir kr. á fjárlögum 2008 vegna reksturs Ratsjárstofnunar.

Á þessum tímamótum er mikilvægt að yfirtakan raski ekki núverandi starfsemi sem lýtur bæði að öryggis- og varnarmálum og borgaralegri flugumferð. Við yfirtökuna verður leitað leiða til að auka hagræðingu í rekstri starfseminnar og draga úr kostnaði ríkissjóðs. Jafnframt verða gildandi kjarasamningar og ráðningarsamningar starfsfólksins virtir," segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×