Innlent

Ætluðu að stöðva óprúttna viðskiptavini en urðu fyrir líkamsárás

Starfsmaður veitingahúss var sleginn í andlitið um helgina þegar hann hugðist stöðva viðskiptavini sem ætluðu að stinga af frá ógreiddum reikningi. Starfsmaður verslunar fékk svipaða útreið þegar hann ætlaði að koma í veg fyrir þjófnað.

Alls voru tólf líkamsárásir tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Nokkrir þurftu að leita sér aðhlynningar á slysadeild vegna þeirra. Tvítugur piltur handleggsbrotnaði eftir átök á Laugavegi og eyra var bitið af konu á þrítugsaldri í Bankastræti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×