Innlent

Mokveiði í Elliðaánum

MYND/365

Tæplega tvöhundruð laxar voru veiddir í Elliðaánum í síðustu viku og eru árnar aflahæstu ár landsins sé miðað við lax á hverja stöng.

Í gær hafði 427 löxum verið landað úr Elliðaánum samkvæmt samantekt sem birt er á vef Landssambands veiðifélaga. Fyrir viku voru 230 laxar komnir á land og var veiði síðustu viku því 197 laxar.

Árnar eru í fimmta sæti yfir heildarlaxafjölda það sem af er sumri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×