Innlent

Fimmtán umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í gær

Fimmtán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og telst það lítið.

Þrjú óhappanna má rekja til aksturs undir áhrifum fíkniefna en þar áttu í hlut fertugur karlmaður og tveir piltar um tvítugt. Þá var karlmaður á fimmtugsaldri tekinn fyrir ölvunarakstur.

Lögreglan stöðvaði einnig för tvítugs pilts í útjaðri borgarinnar en sá var hraðferð og tók fram úr allnokkrum bifreiðum hægra megin eða á vegöxl. Aksturslag hans þótti afar glannalegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×