Innlent

Tveir á tvöföldum hámarkshraða í íbúðargötu

Tveir ökumenn voru sviptir ökuleyfi til bráðabirgða í gærkvöldi en bílar þeirra mældust á meira en tvöföldum leyfilegum hámarkshraða í íbúðargötu í Breiðholti. Annar ökumannanna er 17 ára og nýkominn með bílpróf en hinn er á fertugsaldri.

Aðrir tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur. Annar var stöðvaður í miðborginni um kvöldmatarleytið í gær en hinn í Kópavogi í nótt. Þeir eru báðir um þrítugt. Til viðbótar stöðvaði lögreglan þrjá ökumenn sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Einn þeirra er 18 ára og hefur áður verið tekinn fyrir sama brot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×