Innlent

Lögreglubílum fjölgað undanfarin ár

Gissur Sigurðsson skrifar

Lögreglubílum hefur fjölgað, meðalaldur þeirra lækkað og akstur þeirra aukist verulega, frá því að Ríkislögreglustjóri tók við innkaupum og rekstri allra lögreglubíla í landinu fyrir nokkrum árum.

Áður en það fyrirkomulag kom til rak hvert sýslumannsembætti lögreglubíla sína. Þetta kemur fram í athugasemd frá Ríkislögreglustjóra vegna fréttar okkar um helgina, um að sum embættin spöruðu við sig að nota lögreglubílana vegna greiðslna til Ríkislögreglustjóra fyrir hvern ekinn kílómetra.

Það er ekki rétt því samkvæmt samningi, sem gerður var á grundvelli umferðaröryggisáætlunar milli Samgönguráðuneytis, Umferðarstofu, Vegagerðarinnar og Ríkislögreglustjóra, greiðir Samgönguráðuneytið fyrir aukið umferðareftirlit lögreglumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×