Innlent

Gátan um eitt vinsælasta borðspil heims leyst

Dr. Yngvi Björnsson
Dr. Yngvi Björnsson MYND/HR

Dr. Yngvi Björnsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, tók þátt í að finna hina fullkomnu lausn á því hvernig eigi að spila leikinn dammtafl án þess að eiga minnsta möguleika á því að tapa.

Vísindatímaritið Science upplýsir lausn gátunnar um eitt virtasta borðspil heims. Yngvi er hluti rannsóknarteymisins sem kom að því að leysa gátuna og er einn af aðalhöfundum greinarinnar í Science. Teymið hannaði og smíðaði hugbúnað sem var notaður til að sanna, að með bestu mögulegu spilamennsku beggja leikmanna verður niðurstaðan alltaf jafntefli. Það tók hugbúnaðinn nokkur ár að ljúka sönnuninni.

"Fjöldi mögulegra staða sem upp getur komið í dammtafli er yfir 500 milljarðar milljarða, eða um milljón sinnum fleiri en fyrir sambærileg viðfangsefni sem leyst hafa verið fram að þessu. Hugbúnaðurinn sem notaður var til að útbúa lausnina byggir á gervigreindartækni, og markar þessi niðurstaða mikilvæg þáttaskil í stærð vandamála sem hægt er að leysa með slíkri tækni," að því er segir í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×