Innlent

Iðnaðarráðherra leggst á sveif með afa og ömmu

Alejandra ásamt afa sínum og ömmu vinstra megin á myndinni
Alejandra ásamt afa sínum og ömmu vinstra megin á myndinni MYND/bb.is

Afi og amma Suður-amerískrar stúlku á Ísafirði standa í ströngu í viðskiptum sínum við yfirvöld innflytjendamála. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra hefur nú lagst á sveif með hjónunum.

Á heimasíðu Bæjarins besta er sagt frá afa og ömmu hinnar Suður-amerísku Alejöndru sem þurfa að sækja um dvalarleyfi fyrir hana hér á landi á sex mánaða fresti. Þau hafa búið á Ísafirði síðan þau flúðu frá El Salvador fyrir sex árum. Afinn og amman, þau Pablo Díaz Ulloa og Paula Isobel Orellana de Díaz, hafa fengið skriflegt leyfi frá foreldrum stúlkunnar til að ættleiða hana en það er ekki tekið gilt hér á landi. Þegar lögfræðingur fólksins sem vann í ættleiðingarferlinu lést í jarðskjálfta í El Salvador árið 2001 kom auk þess strik í reikninginn. Samkvæmt lögum í El Salvador eru afinn og amman einnig orðin of gömul til þess að ættleiða.

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra tekur málið upp á heimasíðu sinni og ber það saman við mál tengdadóttur Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, en hún fékk ríkisborgararétt eftir einungis tveggja ára dvöl hér á landi.



Össur segist ekki kunna ráð til að hjálpa afa og ömmu Alejöndru til að ættleiða hana í gegnum hið salvadorska og íslenska skrifræði en hann segist kunna ráð til að koma í veg fyrir að þau þurfi að lifa í ótta við að stúlkunni verði vísað úr landi. Hann segir Alþingi geta veitt hverjum sem er ríkisborgararétt og nefnir þar Bobby Fisher sem dæmi. "Fyrst Alþingi gat beygt reglur og hefðir fyrir tengdadóttur mikilsmetins stjórnmálamanns hlýtur það að geta gert Alejöndru litlu að íslenskum ríkisborgara strax á næsta þingi," segir Össur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×