Innlent

Bára Friðriksdóttir valin í Tjarnaprestakalli

Valnefnd í Tjarnaprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi, ákvað á fundi sínum þann 6. júlí síðastliðinn að leggja til að sr. Bára Friðriksdóttir verði ráðin sóknarprestur í Tjarnaprestakalli. Níu umsækjendur voru um embættið. Embættið veitist frá 1. september 2007.

Bára Friðriksdóttir lauk guðfræðiprófi frá HÍ 1995. Hún var skipaður prestur í Vestmannaeyjaprestakalli 1998 og vígð sama ár. Bára hefur einnig starfað í afleysingum sem sóknarprestur í Hveragerði, prestur við Hallgrímskirkju og Dómkirkju og sem héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.

Dóms - og kirkjumálaráðherra skipar í embættið til fimm ára að fenginni niðurstöðu valnefndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×