Innlent

Ökumenn og bíll í annarlegu ástandi

Nítján ára piltur var tekinn í miðborginni á föstudag fyrir að keyra undir áhrifum fíkniefna. Með honum í bílnum voru tveir piltar og ein stúlka. Ungmennin voru öll í annarlegu ástandi og voru flutt á lögreglustöð. Ökumaður bílsins reyndist þegar hafa verið sviptur ökuleyfi og bíll hans var auk þess búinn nagladekkjum.

Á sunnudag var svo 17 ára piltur tekinn í Ártúnsbrekku en sá var líka undir áhrifum fíkniefna. Bíllinn sem hann ók var búinn nagladekkjum og kom í ljós að þetta var sama ökutæki og stöðvað var í miðborginni á föstudag.

Alls voru fjórir ökumenn teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×