Tónlist

Nýtt lag frá Millunum

Þeir eru miklir golfarar og eru svo heppnir að eiga bráðsnjallan kylfusvein en eins og sést er búið að setja andlit Stefáns Hilmarssonar á hinn lágvaxna svein.
Þeir eru miklir golfarar og eru svo heppnir að eiga bráðsnjallan kylfusvein en eins og sést er búið að setja andlit Stefáns Hilmarssonar á hinn lágvaxna svein.

Milljónamæringarnir hafa sent frá sér nýtt lag sem ber nafnið „Við elskum þig nú samt“. Lagið er eftir Karl Olgeirsson en textinn er eftir Stefán Hilmarsson. Þó svo að þetta sé ekta Millalag þá er það óvenjulegt að því leyti að það skartar þó nokkrum gítarleik sem hljómsveitin notar sjaldan. Það er Ómar Guðjónsson sem sér um gítarleikinn.



Plata frá drengjunum er svo væntanleg í byrjun ágúst og auk þess halda Milljónamæringarnir sinn árlega Sparidansleik á Broadway laugardaginn eftir verslunarmannahelgina, þann 11. ágúst. Þar fá nýju lögin að hljóma í bland við gömul og Laddi verður sérstakur heiðursgestur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×