Menning

Hátíðarhöld við Háskólann á Akureyri

Föstudaginn 1. desember kl. 17.00 verður Íslandsklukkunni, listaverki Kristins E. Hrafnssonar, við Háskólann á Akureyri hringt sex sinnum, einu sinni fyrir hvert ár umfram árið 2000. Baldvin Jóh. Bjarnason fyrrverandi kennari og skólastjóri hringir klukkunni með aðstoð Gunnars Aðalgeirs Arasonar 5 ára leikskólanema. Varaforseti háskólaráðs og formaður Félags stúdenta við HA munu flytja ávörp og eftir barnasöng verður boðið upp á kakó og smákökur í kaffiteríu skólans. Sú skemmtilega hefð hefur skapast við athöfnina að þar er samvinna skólastiga í forgrunni og setja leikskólanemendur sem eru að hefja sína skólagöngu skemmtilegan svip á hátíðlega athöfn.

Klukkan 12.00 sama dag heldur Skúli Skúlason rektor Hólaskóla hátíðarfyrirlestur sem ber heitið Hlutverk okkar í mótun íslenskrar menningar. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu L201 að Sólborg v/Norðurslóð. Boðið verður upp á tónlistaratriði og léttar veitingar.

Bæjarbúar og aðrir eru hjartanlega velkomnir í hátíðlega desemberstemningu við Háskólann á Akureyri






Fleiri fréttir

Sjá meira


×