Menning

Unglist fer vel af stað

Dansinn dunar á Unglist.
Dansinn dunar á Unglist.

Eins víst og Lóan kemur á vorin þá hefur Unglist Listahátíð ungs fólks, verið árviss viðburður á haustdögum í Reykjavík frá árinu 1992. Hátíðin stendur yfir í rúma viku í hvert sinn með fjölda þátttakenda og njótenda. Unglist hefur ávallt verið starfrækt í tengslum við Hitt Húsið, menningar -og upplýsingarmiðstöð ungs fólks. Dagskráin í ár er fjölbreytt að vanda þar sem ljúfir klassískir tónar hljóma, rokkið tekur völdin, dansinn dunar, kjólacult og kápuklassík, gjörningar, drama og annað gott verður lagt á borð fyrir listætur. Allt í boði ungs fólks sem hefur af elju og metnað gert gnægtarborð listanna sem veglegast.

Unglist listahátíð ungs fólks hefur farið vel af stað og mikil ánægja ríkt jafnt hjá þátttakendum sem og gestum með viðburði hátíðarinnar. Dansinn mun duna á morgun þar sem dansarar frá Listaháskóla Íslands, Listdansskóla Íslands, Dansrækt JSB, Dansskóla Birnu Björns, Klassíska Listdansskólanum, Kramhúsinu, Árbæjarþreki og Strákaverkefninu Íd munu leika listir sínar. Fimmtudagurinn verður fjörugur með kvöldi í boði Listaháskólanema í Tjarnabíó og jafnframt tónlist, málun og annað fútt í boði ungra listaspíra í Hinu Húsinu, Leiktu betur á Föstudagskvöldið og síðan rokkað feitt á laugardag.

.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×