Innlent

Aldrei fleiri nemendur á Bifröst

MYND/Hari

Aldrei hafa fleiri nemendur verið í Viðskiptaháskólanum á Bifröst sem settur verður á sunnudaginn kemur. Þá munu rúmlega 700 nemendur hefja eða halda áfram námi í viðskiptum, félagsvísindum, lögfræði og frumgreinum við skólann. Til samanburðar voru nemendur við skólann um 120 árið 1998. Fram kemur í tilkynningu frá skólanum að aðsókn hafi heldur aldrei verið meiri, því rúmlega 700 umsóknir hafi borist frá nýjum nemendum. Um 800 manns búa nú í háskólaþorpinu á Bifröst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×