Innlent

Erfiðlega gekk að greiða Magna atkvæði

Erfiðlega gekk að greiða atkvæði fyrir raunveruleikaþáttinn Rockstar Supernova í gærkvöldi vegna mikils álags, í það minnsta hér á Íslandi. Atkvæðagreiðsla á heimasíðu Rockstar, í spjallforriti MSN og í gegnum síma byrjaði upp úr tvö í nótt.

Margir Íslendingar ætluðu að styðja Magna með því að senda inn fjölda atkvæða en allavega fram til þrjú í nótt komst ekki í gegn nema brotabrot af þeim atkvæðum sem fólk reyndi að senda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×