Innlent

Eldur kviknaði í timbursölu BYKO

Mynd/Vilhelm

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á áttunda tímanum í kvöld vegna elds sem hafði kviknað í sagi í timbursölu BYKO í Kópavogi. Starfsmenn Byko voru búnir að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn. Talsverður reykur var á svæðinu og þurftu slökkviliðsmenn því að reykræsta timbursöluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×