Innlent

Hætta á frekara grjóthruni og aurskriðum í og við Siglufjörð

Frá Siglufirði
Frá Siglufirði Úr myndasafni

Laust eftir miðnætti kom vatnsflaumur og drulla úr skurði sem fór inn í kjallara húss á Siglufirði. Mikil úrkoma hefur verið s.l. 2 daga og búast má við að hún verði til hádegis á morgun samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu.

Samkvæmt tilkynningu má búast við grjóthruni og aurskriðum í og við Siglufjörð. Vegfarendur sem eiga leið um svæðið eru beðnir um að hafa varann á.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×