Innlent

Smyglaði 300 grömmum af hassi

Þrír sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við fíkniefnasmygl fangavarðar á Litla-Hrauni sem handtekinn var á laugardag. Orðrómur er meðal refsifanga á Litla-Hrauni um að fangavörðurinn hafi einnig smyglað farsímum inn í fangelsið.

Mennirnir þrír hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til næsta laugardags, fangavörðurinn var hnepptur í varðhald síðastliðinn laugardag en fangarnir á sunnudag.

Fangavörðurinn er rúmlega tvítugur og hefur verið í sumarafleysingum. Talið er víst að þetta sé ekki það fyrsta sem fangavörðurinn smyglar fíkniefnum inn í fangelsið og er orðrómur innan veggja Litla-Hrauns að maðurinn hafi smyglað fleiru eins og farsímum sem eru bannaðir meðal fanga.

Samkvæmt heimildum var fagnavörðurinn gripinn með þrjú hundruð grömm af hassi en slíkt magn getur dugað dagreykingamanni í um eitt ár. Eins var fangavörðurinn með í fórum sínum harðari efni en í mun minna magni. Annar fanganna sem situr í gæsluvarðhaldi var í vor dæmdur í fjögurra ára fangelsi en hann var handtekinn í febrúar með tæp fjögur kíló af amfetamíni. Hinn er fanginn er með nokkuð langan sakaferill að baki bæði fyrir alvarlegar líkamsárásir og fíkniefnamisferili. Bróðir sem er fyrrverandi fangi hefur einnig verið handtekinn vegna málsins en hann hefur ekki verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Ljóst er að mun meira hefur verið um fíkniefni inn á Litla-Hrauni í sumar en oft áður.

Sigurjón Birgisson, formaður fangavarðafélags Íslands, segir heimskulegt að útiloka að fangaverðir geti verið flutningsleið fyrir fíkniefni og vill hann hertara eftirlit til að tryggja öryggi fangavarða gegn hótunum.

Eins telur Sigurjón mikilvægt að fangelsið fái fíkniefnahund, gegnumlýsingartæki og fleira starfsfólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×