Innlent

Eldur í kjallara

Mynd/Hrönn Axelsdóttir
Eldur kom upp í kjallara nýbyggingar við Dalveg í Kópavogi, rétt eftir klukkan átta í gærkvöldi. Kviknaði hafði í frauðplasti sem var þar til geymslu og lagði mikinn reyk frá eldinum. Reykkafarar voru sendir niður í kjallarann, og tók þá um 20 mínútur að slökkva eldinn. Engann sakaði. Húsið var reykræst og ekki urðu miklar skemmdir á því. Eldsupptök eru óljós og fer lögreglan í Kópavogi nú með rannsókn málsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×