Innlent

Bílslys á Reykjanesbraut

Árekstur varð á Reykjanesbraut við Vogar rétt fyrir miðnætti í gær þegar fólksbíll keyrði inn í tengivagn fluttningabíls. Talið er að fólksbíllinn hafi ekið á öfugum vegarhelmingi með þeim afleiðingum að árekstur varð og kastaðist bíllinn við það út af veginum. Tveir menn voru í bílnum og meiddust þeir lítilega en ökumaður fluttningabílsins slapp við meiðsli. Ökumaður fólksbílsins er grunaður um ölvun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×