Innlent

Um helmingur starfsmanna Varnarliðsins komnir með vinnu

Mynd/Heiða Helgadóttir

Tæplega helmingur starfsmanna Varnarliðsins sem búsettur er á Suðurnesjum hefur nú þegar gengið í önnur störf en 7 vikur eru þar til uppsagnarfrestur rennur út.

Fram kemur í fréttum frá Ráðgjafarstofu starfsmanna Varnarliðsins að í lok mars á þessu ári voru 593 starfandi hjá Varnarliðinu en 427 voru

búsettir á Suðurnesjum. Í dag eru um 230 starfsmenn Varnarliðsins frá Suðurnesjum ennþá á launaskrá Varnarliðsins en 217 hafa gengið til annarra starfa. Af þeim sem enn eru á launaskrá eru 20 starfsmenn 67 ára og eldri og 66 starfsmenn eru á aldrinum 60-66 ára. Í hópnum sem enn er að störfum eru um 100 iðnaðarstörf og 80 skrifstofustörf.

Ráðgjafarstofa fyrir starfsmenn Varnarliðsins var opnuð fyrir tilstuðlan Reykjanesbæjar og starfsgreinafélaga á svæðinu. Stofan hefur haft milligöngu um ókeypis námskeið fyrir tæplega 300 starfsmenn. Rúmlega 90 starfsmenn hafa þegið einstaklingsbundna ráðgjöf hjá Ráðgjafarstofunni og 400 starfsmenn hafa haft samband við stofuna varðandi upplýsingagjöf.

Rúmlega 60 fyrirtæki og stofnanir hafa óskað eftir aðstoð við leit að

starfsfólki og eru nú 68 störf í boði hjá Ráðgjafarstofunni auk auglýsinga

fyrirtækja í staðarblöðum þar sem auglýstar eru að meðaltali 10 stöður í

hverri viku. Mest er eftirspurn eftir iðnaðarmönnum, bílstjórum og ófaglærðum en minnst eftir skrifstofufólki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×