Innlent

Höfuðkúpu- og kjálkabeinsbrotnaði

Maður höfuðkúpubrotnaði og var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild eftir að félagi hans réðst á hann í heimahúsi í Skerjafirði í gærkvöld.

Maður höfuðkúpubrotnaði og var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild eftir að félagi hans réðst á hann í heimahúsi í Skerjafirði í gærkvöld. Hann komst þó fljótt til meðvitundar en er auk höfuðkúpubrotsins, kjálkabeinsnbrotinn og með brotinn augnbotn og augntóft. Ekki er ljóst hvað gerðist en að sögn lögreglu voru þrjú vitni að árásinni. Fólkið var allt statt á heimili eins þeirra þegar slettist upp á vinskapinn með fyrrgreindum afleiðingum. Árásarmaðurinn gistir nú fangageymslur lögreglunnar en hann verður yfirheyrður síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×