Innlent

Jón Baldvin hafnaði myndun vinstri stjórnar 1995

 

Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem fyrst var mynduð árið 1995 og starfar enn eftir tvennar kosningar, er einhver mesta framfarastjórn Íslandssögunnar. Þetta sagði Halldór Ásgrímsson, fráfarandi formaður Framsóknarflokksins. Halldór sagði flokksmenn geta verið stolta af verkum ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn væri og hefði frá fornu fari verið höfuðandstæðingur Framsóknarflokksins en samstarf þessara tveggja flokka undanfarin ellefu ár hefði verið einstaklega farsælt.

"Því heyrist stundum fleygt af vinstri kantinum í íslenskum stjórnmálum að Framsóknarflokkurinn hafi gerst einhver hækja íhaldsins, eins og þeir orða það, í þessu samstarfi. Það er fjarri öllum sanni," sagði Halldór Ásgrímsson og bætti við að áhrif Framsóknarflokksins í samastarfi við Sjálfstæðisflokkinn hafi verið meiri ef eitthvað er.

"En færri vita að í kringum alþingiskosningarnar árið 1995 áttu sér stað óformlegar þreifingar um samstarf til vinstri. Þá kvað þáverandi formaður Alþýðuflokksins sáluga upp úr með það að hann vildi fremur áframhaldandi samstarf með Sjálfstæðisflokknum og ekkert varð úr þeim viðræðum," sagði Halldór Ásgrímsson.

Að loknum kosningunum 1995 tók ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks við völdum og situr enn. Allan þann tíma hafa flokkarnir á vinstri vængnum verið utan landsstjórnar.

"Og ég er ekki í neinum vafa um að það var rétt og farsæl ákvörðun hjá okkur að semja við Sjálfstæðismenn og ég lít stoltur til baka yfir þessi 11 ár sem liðin eru síðan þá," sagði Halldór Ásgrímsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×