Innlent

Gefa meira en 20 milljónir

MYND/Vilhelm

Áheit á starfsmenn Glitnis sem hlaupa í Reykjarvíkurmaraþoninu eru komin yfir 20 milljónir. 502 starfsmenn bankans hafa skráð sig og hlaupa þeir til styrktar starfsemi yfir 50 góðgerðasamtaka. Heildarvegalengdin sem starfsmennirnir ætla að hlaupa er 4.354 kílómetrar, Glitnir greiðir 3000 krónur á hvern hlaupinn kílómetra.

Starfsmenn skoruðu á almenning að leggja sitt af mörkum og heita á þá eins og bankinn. Þannig hafa safnast sjö milljónir til viðbótar við það sem bankinn gefur og heildarupphæðin kominn yfir 20 milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×