Innlent

Fagaðilar óttast breytingar

Björn Ingi Hrafnsson
Björn Ingi Hrafnsson MYND/Hörður Sveinsson

Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, segir viðbrögð fagaðila við nýju leikskólaráði lýsa ótta við breytingar. Leikskólinn muni styrkjast við breytinguna.

Borgarráð samþykkti í dag að stofna nýtt leikskólaráð sem á að fara með málefni leikskólanna og daggæslu. Þessi mál hafa verið á forræði menntaráðs síðasta eina og hálfa árið. Björn Ingi vísar því á bug að með þessu sé verið að búa til formannsstól fyrir Sjálfstæðisflokk. Hann segir málefni leikskólans það mikilvæg að þau þurfi sér ráð. Í menntaráði hafi málefni leikskólans aðeins fengið 20% af tíma ráðsins.

Í fréttatilkynningu segir að faglegar ástæður liggi að baki ákvörðun borgarstjórnar. Leikskólamálin fái ekki næga umfjöllun eins og er. Málið hafi verið rætt og fulltrúar meirihlutans hafi fengið ábendingar frá fagaðilum. Menntaráð fagnar einnig breytingunum. Fulltrúar leikskólakennara eru þó ekki á sama máli. Stjórn Kennarasamband Íslands sendi frá sér ályktun seinnipartinn í dag þar sem vinnubrögð meirihlutans eru fordæmd. Stjórnin segist vænta þess að borgarstjórn endurskoði ákvörðun sína. Leikskólastjórar hafa áður sent frá sér svipaða ályktun og Birni Inga Hrafnssyni, formanni borgarráðs, voru í morgun afhentar um 700 undirskriftir leikskólakennara sem mótmæltu klofningi menntaráðs harðlega.

Björn Ingi segir þessi viðbrögð lýsa að einhverju leyti hræðslu við breytingar. Þessir sömu aðilar hafi mótmælt þegar fræðsluráð og leikskólaráð voru sameinuð í eitt menntaráð. Hann vilji því fullvissa fólk um að meirihlutinn hyggist standa vel að málum. Nýtt leikskólaráð muni efla leikskólann og styrkja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×