Innlent

Aukin áhersla á flug til Evrópu

Mynd/Anton Brink

Í vetraráætlun Icelandair liggur fyrir aukin áhersla á flug til áfangastaða í Evrópu en að sama skapi mun draga lítilega úr flugi til Bandaríkjanna. Áætlað er að fljúga til Manchester í allan vetur og auka flug til Berlínar, Kaupmannahafnar, St. Pétursborgar í Rússlandi og Salzburgar í Austurríki. Framboðið Icelandair í heild sinni verður þó svipað og var seinasta vetur.

Icelandair mun bjóða upp á beint áætlunarflugi til 14 áfangastaða í

Evrópu og Bandaríkjunum. Áfangastaðir félagsins í vetur eru Amsterdam,

Baltimore/Washington, Boston, Frankfurt, Glasgow, Kaupmannahöfn, London, Manchester, Minneapolis, New York, Orlando, Osló, París, Salzburg og Stokkhólmur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×