Innlent

Bænastund í Safnaðarheimilinu í Sandgerði

Klukkan sex í kvöld hefst bænastund í Safnaðarheimilinu í Sandgerði til að minnast þeirra tveggja sem létust í bílslysi í gærkvöldi rétt fyrir utan Sandgerði.



Bílslysið varð rétt eftir klukkan sjö í gærkvöldi á Garðskagavegi þegar sendibíll og fólksbíll lentu í hörðum árekstri. Ökumaður sendibílsins sem var þrjátíu og fjögurra ára, er talinn hafa látist samstundis. Tuttugu og tveggja ára karlmaður sem var farþegi í sendibílnum, lést skömmu eftir að sjúkraflutningamenn komu með hann á slysadeild Landsspítalans. Ökumaður fólksbílsins, sautján ára gamall, er kominn úr öndunarvél en liggur enn talsvert slasaður á Gjörgæsludeild Landsspítalans.

Sandgerðisdögum sem halda átti hátíðlega um þar næstu helgi hefur verið frestað vegna atburðarins




Fleiri fréttir

Sjá meira


×