Innlent

Eldur kviknaði hjá Ingvari Helgasyni

Eldur kviknaði í bíl á verkstæði Ingars Helgasonar rétt fyrir klukkan fimm í dag. Kviknað hafði í klæðningu á vélarhlíf. Orsökin er talin ofhitnun vélar. Starfsmenn ýttu bílnum út af verkstæðinu og slökktu eldinn áður en slökkvilið kom á staðinn. Einn maður var fluttur á slysadeild vegna gruns um reikeitrun. Slökkviliðið vinnur nú að reykræstingu á verkstæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×