Innlent

Fjórtán ára ökuníðingur

Fjórtán ára unglingur er uppvís að því að hafa næstum ekið niður tvo lögreglumenn á Neshaga í Reykjavík, aðfararnótt mánudags, og stungið af. Hann mun hafa fengið lykil að bílnum hjá dóttur eigandans og voru að minnstakosti tveir jafnaldrar hans með honum í bílnum, þegar atvikið varð, þar sem lögreglu- og slökkviliðsmenn voru að sinna störfum vegna elds í íbúð. Þegar pilturinn ók óvænt fram á þann liðsafla, mun honum hafa brugðið og í fátinu munaði minnstu að hann æki lögrelgumennina niður. Ferðir unglinganna á bílnum, munu ekkert tengjast íkveikjunni í íbúðinni, eins og grunur lék á í fyrstu.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×