Innlent

Töldu sig ekki mega versla á frísvæði Keflavíkurflugvallar

MYND/AP
Hertar öryggisreglur á Keflavíkurflugvelli hafa áhrif á mörgum ólíkum sviðum. Til dæmis þorðu margir brottfararfarþegar ekki að versla á frísvæðinu í flugstöðinni í morgun af ótta við að brjóta reglur en svo er þó ekki.

Að sögn Elínar Árnadóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Flugstöðvarinnar, hafa allar vörur á fríðsvæðinu verið vopna- og sprengjuskoðaðar og geta farþegar því keypt þær að vild og haft með sér út í vélarnar og farþegar til Bandaríkjanna fá vörurnar ekki afhentar fyrr en við útgang í vélarnar.

Breytingarnar í Leifsstöð þýða líka að farþegar á leið til útlanda þurfa að vakna heilli klukkustundu fyrr á nóttunni til að verða við þeim tilmælum löggæslunnar á flugvellinum að mæta að minnsta kosti tveimur klukkustundum fyrir flug í flugstöðina, vegna ítarlegrar vopnaleitar.

Kynnnisferðir, sem reka flugvallarrúturnar, búast við að aðalálagið, sem hefur verið með rútunum klukkan 5.15 og 5.30 færist nú framar í nóttina eða nær miðnættinu. Þá þurfa morgunverðarborð á hótelum að vera tilbúin fyrr en ella.

Icelandair hefur ákveðið að heimila fólki að bæta þremur kílóum við farangur sinn, sem fer í lest flugvélanna, þannig að heildarþyngd verði 23 kíló, áður en til greiðslu á yfirvigt kemur. Þetta er gert vegna takmarkana á handfarangri sem stafa af hertum öryggisaðgerðum.

Breytingarnar vekja upp spurninguna um hvort Icelandair muni hugsanlega seinka morgunbrottför flestra Evrópuvélanna til að farþegar fái meiri kvíld á hótelum. Eftir því sem NFS kemst næst mun það ekki vera til skoðunar, þar sem félagið á fasta afgreiðslutíma á flugvöllum víða um heim sem erfitt yrði að breyta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×