Innlent

Enn samdráttur á fasteignamarkaði

Umsvif á fasteignamarkaði halda áfram að dragast saman og var aðeins 67 samningum þinglsýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni eftir verslunarmannahelgina. Það er meira en hundrað samningum færra en í sömu viku í fyrra og 59 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna.

Umsvifin núna voru þau minnstu ef frátalin er fjöldi samninga á milli jóla og nýárs árin 2002 og þrjú, en þá voru aðeins tveir og hálfur virkur dagur hvora vikuna. Veltan hefur líka hríð lækkað og fór niður undir tvo milljarða í vikunni eftir verslunarmannahelgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×