Innlent

Innipúkahátíðin hafin

Dr. Gunni
Dr. Gunni MYND/Valgarður Gíslason

Innipúkahátíðin er hafin þessa verslunarmannahelgi, en enn er ekki uppselt á hana. Innipúkinn er árleg hátíð um verslunarmannahelgi fyrir fólk sem nennir ekki að þvælast út á land og gista í leku tjaldi til að fara á góða tónleika. Innipúkinn er líka fyrir fólkið sem er fast í bænum vegna vinnu en langar samt að lyfta sér upp á kvöldin. Hátíðin er haldin í fimmta sinn í ár og er á Nasa.

Dr. Gunni opnaði hátíðina klukkan sex með hinu góðkunna lagi Snakk fyrir pakk. Í ár er margt góðra hljómsveita, og í kvöld spiluðu meðal annarra Jan Mayen og Jomi Massage. Stemmningin er góð en fólk var enn að streyma að klukkan níu. Seinna í kvöld stíga á stokk böndin Television og hinir íslensku Jeff Who-liðar.

Vert er að benda á að enn er hægt að kaupa sér miða á hátíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×