Innlent

Vélhjólamaður missir stjórn

Vélhjólamaður slapp nær ómeiddur þegar hann missti stjórn á hjólinu á Hringbraut á móts við BSÍ  í gærkvöldi með þeim afleiðingum að maður og hjól féllu í götuna. Að sögn sjónarvotta rann maðurinn langa leið þartil hann nam staðar, en góður hlífðarfatnaður kom í veg fyrir að honum yrði meint af því. Hann var þó fluttur á Slysadeild Landsspítalans til skoðunar, en útskrifaður þaðan fljótlega.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×