Innlent

Um 4.600 manns eiga bókaðar ferðir til Eyja

Frá Þjóðhátíð í Eyjum
Frá Þjóðhátíð í Eyjum Mynd/Vísir

Um 4.600 manns eiga bókaðar ferðir til Vestmannaeyja um næstu helgi. Fréttavefurinn Suðurland.is greinir frá því að flestir farþeganna eigi bókað far með Herjólfi til Eyja eða rúmlega 3.000 manns. Um 940 farþegar munu fljúga með Flugvfélagi Vestmannaeyja og þá eiga um 600 manns bókað flug til Eyja með Landsflugi en Landsflug mun fljúga frá Reykjavík, Höfn í Hornafirði og Sauðárkróki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×