Innlent

Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi

Malbikunarframkvæmdir hefjast í kvöld á Suðurlandsvegi  í Hveradalabrekku.  Gert er ráð fyrir að verkið taki einn og hálfan sólarhring og mega vegfarendur búast við umferðartöfum á meðan á því stendur.  Ökumenn eru minntir á að virða þær merkingar sem settar eru upp vegna framkvæmdanna og aka gætilega um vinnusvæðið.   Hægt er að fara um Þrengsli til að komast hjá þeim töfum sem hugsanlega verða á umferðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×