Innlent

Brotist inn í íþróttaverslun

Mynd/sviðsett
Brotist var inn í íþróttaverslun í Keflavík í nótt. Vegfarandi tilkynnti lögreglu um innbrotið sem kom á staðinn og greip innbrotsþjófana glóðvolga þar sem þeir voru að stinga á sig skóm og fleira smálegu. Þeir voru færðir í fangafeymslur lögreglunnar. Töluverð ölvun var í Keflavík í nótt og mikið um minniháttar stimpingar manna á milli. Þá stöðvaði lögreglan bíl sem í voru góðkunningjar lögreglu og handtók í kjölfarið bílstjóra og farþega, alls þrjá menn, þar sem hvítt duft fannst á þeim sem lögreglan telur vera amfetamín.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×