Innlent

Skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma stríðsátökin í Líbanon

Mótmælendur söfnuðust saman á götum Rio De Janeiro í gær. Andstaða við stríðsátökin eykst dag frá degi.
Mótmælendur söfnuðust saman á götum Rio De Janeiro í gær. Andstaða við stríðsátökin eykst dag frá degi. Mynd/AP

Samtök herstöðvaandstæðinga skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma mannréttindabrot Ísraels í Líbanon og beita sér fyrir því að þau verði stöðvuð tafarlaust. Í tilkyningu frá samtökunum segir að Bandaríkjastjórn hafi komið í veg fyrir að fjölþjóðleg ráðstefna í Róm í gær krefðist þess að tafarlausu vopnahlé yrði komið á, og Bretland og Þýskaland hafi komið í veg fyrir að Evrópusambandið beitti sér í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×