Innlent

Vantar ríflega 100 starfsmenn

leikskólabörn
Starfsfólk vantar í 105 stöðugildi á leikskólum í Reykjavík.
leikskólabörn Starfsfólk vantar í 105 stöðugildi á leikskólum í Reykjavík.

Alls vantar starfsfólk í 105 stöðugildi á leikskólum og 28 stöðugildi í grunnskólum borgarinnar. Þetta kom fram á fundi menntasviðs sem haldinn var í gær. Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, aðstoðarsviðsstjóri menntasviðs segir jákvæðu fréttirnar þær að staðan sé betri en á sama tíma í fyrra.

Í sautján leikskólum vantar að fylla þrjú stöðugildi eða fleiri en 45 leikskólar eru nánast fullmannaðir. Við erum að ráða fólk daglega og auglýsum stöðugt eftir fólki.

Ragnhildur segir að staðan í leik- og grunnskólum verði væntanlega rædd nánar á fundi borgarráðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×