Innlent

Tekinn fullur á bíl foreldranna

Aðfaranótt sunnudags stöðvaði lögreglan í Reykjavík níu ökumenn sem eru grunaðir um ölvun við akstur. Þar af var einn fimmtán ára ökumaður sem lögregla stöðvaði í austurhluta Reykjavíkur um níuleytið um morguninn.

Drengurinn stal bifreið frá foreldrum sínum og ákvað að fara í ökuferð eftir að hafa setið að sumbli. Drengurinn var stöðvaður af lögreglu við eftirlit og vegna aldurs var foreldrum hans gert viðvart til að vera viðstaddir skýrslutöku.

Lögregla kýs að tjá sig ekki um viðbrögð foreldranna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×