Innlent

Valgerður sökuð um að leyna skýrslunni

Valgerður Sverrisdóttir
Valgerður Sverrisdóttir

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks, sakar Valgerði Sverrisdóttur, fyrrverandi iðnað­ar­­ráðherra og flokkssystur sína, um að hafa leynt Alþingi upplýsingum með því að kynna þingmönnum ekki skýrslu Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings um áhyggjur hans vegna öryggis- og umhverfisatriða við byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Segir Kristinn jafnframt að til þess gæti komið að Valgerður þyrfti að segja af sér vegna málsins.

Ég gerði ekkert sem ekki stenst í þessu máli, segir Valgerður. Grímur gerði nokkrar athugasemdir sem lúta að öryggi virkjunnar og var þeim komið á framfæri við Landsvirkjun og ráðuneytið. Síðan var haldinn fundur með fulltrúum Orkustofnunar, þar á meðal Grími, og fulltrúum frá Landsvirkjun og jarðfræðingum. Menn tóku þetta alvarlega.

Valgerður segir að á fundinum hafi öll atriði skýrslunnar verið hrakin nema eitt, en það laut að kostnaði við framkvæmd virkjunarinnar. Kostnaður við virkjunina er ekki eitthvað sem Alþingi hefur til umfjöllunar. Plögg um þetta eru því ekki opinber, segir Valgerður. Valgerður telur ekki hafa verið þörf á að leggja fram skriflegar áhyggjur Gríms og niðurstöðu fundarins fyrir Alþingi. Þingmenn eru ekki sérfræðingar á þessu sviði og það er ekki þeirra hlutverk að fara ofan í svona hluti. Þessum athugasemdum var svarað á þessum fundi og þess vegna eru þær út úr heiminum að mínu mati, segir Valgerður.

Valgerður nefndi skýrsluna í ræðu á Alþingi 14. apríl í fyrra, rúmum þremur árum eftir að hún var lögð fram af Grími. Í ræðunni nefndi hún að sérfræðingar hefðu hrakið flest atriði skýrslunnar og sérfræðingar Alcoa hafi komist að sömu niðurstöðum.

Það er alvarlegt mál ef upplýsingum er haldið frá Alþingi, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks.

Eitt af stærstu málunum í þessari ákvörðun var að setja ríkið í 100 milljarða skuld vegna þessarar framkvæmdar. Alþingi ætti að fá allar upplýsingar í þessum málum og svo er alþingismanna að vega og meta þær. Ég minnist þess ekki að hafa fengið neinar upplýsingar um þessa skýrslu fyrr en nú, segir Kristinn.

Valgerður vildi ekkert tjá sig um athugasemdir Kristins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×