Innlent

Keyrði á tengivagn og valt

Fólksbíll keyrði út af og valt, laust fyrir miðnætti á föstudag eftir að hafa keyrt yfir á rangan vegarhelming og á tengivagn vöruflutningabíls, sem kom úr gagnstæðri átt á Reykjanesbraut. Tvennt var í fólksbílnum, og sluppu þau með minniháttar áverka og skurði eftir glerbrot.

Tengivagn vöruflutningabílsins skemmdist og bíll sem ók fyrir aftan vöruflutningabílinn varð fyrir skemmdum þegar brot úr hinum bílunum skullu á honum. Lögregla segir áreksturinn ekki eins alvarlegan og hann leit út í fyrstu. Ökumaður fólksbílsins er grunaður um ölvunarakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×