Innlent

Fjölmenni á Akureyrarvöku

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands Spilaði við mikla hrifningu gesta.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands Spilaði við mikla hrifningu gesta.

Á fimmta þúsund manns voru í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi þegar Listasumri Akureyringa lauk með Akureyrarvöku. Í tilefni dagsins var boðið upp á menningarviðburði um allan Akureyrarbæ sem góður rómur var gerður að.

Meðal viðburða voru tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Listagilinu undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Listasumar hefur staðið yfir á Akureyri í tíu vikur. Þetta er í fjórtánda skipti sem bæjarbúar og gestir njóta þess og hefur það dafnað með árunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×