Innlent

Eiturefnamóttaka í ljósum logum

Því fylgir mikil óvissa að fara inn í eld við þessar aðstæður. Maður veit ekkert hvað er þarna inni. Þarna geta verið allskonar efni og von á sprengingum svo þetta er öðruvísi tilfinning en að fara inn í venjulegt hús. Já, það var mjög óhugnanlegt að fara inn í húsið, sagði Gunnar Rúnar Ólafsson reykkafari, nýkominn út úr eiturefnamóttöku Sorpu í Gufunesi sem varð eldi að bráð í gær. Áður en slökkvilið kom á staðinn varð sprenging í húsinu sem var nægilega kraftmikil til að stór móttökuhurð fór af hjörum og lenti út á vinnusvæðið fyrir framan húsið.

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á sjötta tímanum eftir að sprengingar heyrðust í eiturefnamóttökunni. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri stjórnaði aðgerðum á staðnum. Eldur eins og þessi setur okkur alltaf í ákveðna viðbragðsstöðu. Við hringdum út stóra úthringingu sem þýðir að við köllum út allan okkar mannskap og einnig þá sem eru á frívakt. Við settum af stað okkar stærsta viðbúnað hér í kvöld.

Mikill viðbúnaður var við Efnamóttökuna á meðan á aðgerðum stóð. Fimmtán til tuttugu bílar frá lögreglu og slökkviliði, þar af 5 sjúkrabílar voru til reiðu þar til slökkvistarfi lauk um klukkan hálf átta í gærkvöldi. Jón Viðar segir að tíu reykkafarar hafi verið við störf og sérstakur viðbúnaður hafi verið viðhafður vegna eiturefnanna. Okkar mannskapur er í eiturefnagöllum utanyfir eldgallana því þarna inni eru margskonar eiturefni sem við vitum ekki hver eru þegar við komum á staðinn. Við göngum því til verka viðbúnir því að hvaða efni sem er séu inni í eldinum.

Einar B. Gunnlaugsson, verkstjóri Efnamóttökunnar hf., segir eldinn hafa komið upp í rafmagnsbúnaði en ekki í vél sem eymar leysiefni frá bílaiðnaði eins og upphaflega var talið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×